Af hverju bók?

Í nútímasamfélagi þar sem áreiti er oft yfirþyrmandi, 
bæði skært og suðandi, fer þráin eftir dýpri hversdags-
legum athöfnum vaxandi. Bókin er þögull og þolinmóður 
vinur. Hún blindar ekki, bilar ekki, reynir ekki að freista 
þín með öðrum inngripum og það þarf ekki að hlaða hana 
– hún hleður þig.

Í bók er vandlega hugsaður texti, mótvægi við 
hraðfærslur dagsins. Þá má nefna að bókin safnar ekki
um þig upplýsingum;í raun veit enginn hvar þú ert eða 
hvað þú ert að lesa. Þess vegna er bóklestur á okkar 
tímum kannski einfaldasta andófið. Bókin krefst þess 
ekki að við leggjum niður aðrar tómstundir hún býður 
einfaldlega upp á nærandi hlé þegar þér hentar, 
hvort sem er í skamma stund eða heila kvöldstund. 
Slík stund er um leið samtal við heiminn.