Íslendingar verja að jafnaði um klukkustund á dag 
í að lesa eða hlusta á bækur. Meðaltíminn sem fólk 
ver í bóklestur hefur þó farið minnkandi með árunum 
samkvæmt könnunum. Árið 2023var hann 69 mínútur 
og 66 mínútur árið 2024. 

Samdrátturinn skýrist að mestu af því að fleiri segjast 
ekki verja neinum tíma í bóklestur. Tæplega fimmtungur 
landsmanna (19%) les aldrei bækur, en undanfarin tvö 
ár hefur þetta hlutfall verið lægra, eða um 14 til 15%. 

Þessari þróun viljum við snúa við. Því stöndum við 
hjá Miðstöð íslenskra bókmennta fyrir lestrarhvatningu 
fyrir fullorðið fólk um land allt, í því skyni að auka bóklestur. Með lestrarhvatningu viljum við fá fleiri 
til að upplifa og njóta þess sem lesturinn færir 
hverjum og einum. Við viljum hvetja lestrarhesta til 
að lesa enn meira og hina, sem lesa lítið eða ekki neitt, 
til að hefja lesturinn. 

Bókaðu stund fyrir bók að þínu skapi!