Í nútímasamfélagi þar sem áreiti er oft yfirþyrmandi,
bæði skært og suðandi, fer þráin eftir dýpri hversdags-
legum athöfnum vaxandi. Bókin er þögull og þolinmóður
vinur. Hún blindar ekki, bilar ekki, reynir ekki að freista
þín með öðrum inngripum og það þarf ekki að hlaða hana
– hún hleður þig.
Í bók er vandlega hugsaður texti, mótvægi við
hraðfærslur dagsins. Þá má nefna að bókin safnar ekki
um þig upplýsingum;í raun veit enginn hvar þú ert eða
hvað þú ert að lesa. Þess vegna er bóklestur á okkar
tímum kannski einfaldasta andófið. Bókin krefst þess
ekki að við leggjum niður aðrar tómstundir hún býður
einfaldlega upp á nærandi hlé þegar þér hentar,
hvort sem er í skamma stund eða heila kvöldstund.
Slík stund er um leið samtal við heiminn.